Neikvæðni er smitsjúkdómur og smitast hraðar út en svínaflensan. Eini munurinn á þessum tveimur sjúkdómum er sá að til er bóluefni gegn beikonveikinni en ekki því fyrrnefnda. Þó að því fylgi mikil neikvæðni þá hef ég alltaf jafn gaman af því að skoða neikvæðni. Er virkilega svona auðvelt að hafa áhrif á fólk. Sumir verða hreinlega neikvæðnir við að sjá fólk. Eins og þegar ég sé núverandi forsetisráðherra sem er einhver neikvæðasta manneskja út á við sem ég veit um.
Ég meina come on þú hún sé lessa þá má hún alveg vera ekki í fýlu. Það er ekki eins og það séu forrétindi samkynhneigða að mega vera í fýlu 24-7. Hver man ekki þegar hún gekk inn í sal fullan af kjósendum Samfylkingar eftir að niðurstaðan úr alþingiskosningum sl. réðust? Ég sá það móment og meðan hún gekk inn í salinn hugsaði ég: "jæja, maður fær allavega að sjá Jóhönnu Sig. missa fýlu-meydóminn" ...ekki aldeilis.. Hún hrópaði einhverjum sigurorðum sem ég man ekki orðrétt því það var eins og hún væri að segja okkur að einhver hefði drepið móður sína. Ég hef ekki haft nein persónuleg tengsl við kelluna þannig ég hef bara séð þetta út frá sjónvarpi og heyrt í útvarpi. Hins vegar hefur móðir mín og afi persónulega reynslu á mannlegum samskiptum við hana og það var eins og við manninn mælt, sama djöfulsins fýlan.
Ég vitna nú bara í orð Hellisbúans: "Þegar konan fer í fýlu þá er fýla!"
Aldrei í lífi mínu ætla ég þá að þiggja heimboð fröken forsetisráðherra. Samt vil ég ráðleggja henni að reyna að lyfta andlitinu á sér. Hún hlýtur að eiga einhvern samkynhneigðan vin sem sér um að setja fólk í lýtaaðgerðir. Hvað heitir aftur homminn þarna á Skjá 1 sem kennir fólki að vera kúl? Lærðu svo líka ensku...
Nú er ég búin að flytja ansi neikvæð orð og kannski hefur það haft neikvæð áhrif á þig. Kannski var nóg fyrir þig að lesa fyrirsögnina til að þú tileinkaðir þér einhverja neikvæðni.
Ástandið á Íslandi er því miður bara frekar neikvætt. Það er svo neikvætt að ekki einu sinni McDonald's getur rekið stað hérna. McDonald's! Einhver allra stærsta skyndibitakeðja í heimi getur ekki hugsað sér að hafa "útibú" á Klakanum samt virðist það vera í lagi að reka McDonald's stað í Zimbabwe þar sem er 10000% verðbólga or some. Ég sé ekkert eftir McDonald's þannig, ég fer ekkert að grenja yfir því að fá ekki hamborgara frá þeim. Ég er bara hræddur um útlit Íslands.
Þá hef ég rekið mína neikvæðnu hugsanir og þá er ég vel undirbúinn til að glíma við leiðindarstærðfræðipróf.. Verið bless og vonandi skilaði neikvæðnin sér aðeins inn til ykkar
Eins og glöggir lesendur sjá þá hefur síðan gengið í gegnum ýmsar breytingar. T.d. eru ekki sömu forsíðu fyrirsæturnar í dag eins og forðum. Fyrrum fyrirsæturnar skiluðu mörgum lesendum á sínum tíma, en nú vegna breytts umhverfis, og þá sérlega á sviði efnahags, þá neyðist síðustjóri að skipta um mynd. Þessi mynd hefur ekki margt fram yfir hina gömlu en eins og áður segir þá eru aðstæður öðruvísi og einhverstaðar verður að skera niður. Þrátt fyrir ódýrari mynd þá vonast aðstandendur síðurnar að lesendum muni ekki fækka. Enn sem komið er hefur ekki áskrift ekki minnkað og þykir það mildi. Að lokum biður síðustjóri lesendur um að sýna þessu skilning og þakka veitta þolinmæði í garð síðunnar sem hefur ekki getað glatt mörg augu undanfarið. Nýir tímar eru gengnir í garð og með þeim munu að öllum líkindum fylgja skilvirkari skrifum. Takk fyrir
24. október 2009 klukkan 15:35
Pálmi Gunnarsson 4 athugasemdir
Ég vil biðjast afsökunar af lélegri frammistöðu í bloggskrifum. Vegna þessa mistaka neyðist ég til að segja af mér sem bloggari og mun fara fram kosning til að skera úr um hver eftirmaður minn verður.
Ég er sífellt meira og meira að gefa mér tíma til að hlusta á greyið mótmælendurna, sem eyða tíma sínum í að lítilsvirða Alþingishúsið, brjótast inn í ríkisstofnanir og fleira, og hef komist að þeirri niðurstöðu að um leið og mistök eigi sér stað þá eigi menn að segja af sér. Hvort sem það var Davíð, ríkistjórnin (alþingi), fjármálaeftirlit, alheimsmarkaðurinn, EES (Jón Baldvin) eða whoever sem gerði mistök þá ætti viðkomandi að segja af sér. Þetta hafa íslendingar alltaf sagt þegar eitthvað gerist í þjóðfélaginu. Engin/n fær tíma né ástæðu til að læra af mistökum og vera þá reynslunni ríkari til að koma í veg fyrir þau næst. Nei allir stjórnmálamenn og valdamenn eiga að fæðast fullkomnir með tölvu í blóðinu. Og hvað gerist svo? Eftirmaður er fundinn og hann gerir mistök og neyðist til að segja af sér. Vegna þess að hann vissi ekkert hvað átti að gera til að koma í veg fyrir áfallið. Þetta er virkar eins og dráttarvél sem rennur niður brekku í hlutlausum gír. Svo kemur þúfa og þá halda menn að dráttavélinni sé bjargað en þúfan tekur bara lítinn hraða á sig og ekki líður löng stund þar til dráttarvélin er farin af stað aftur.
Friðsamleg mótmæli? Jújú það er þeir alltaf að segja. Það er nebbla svo friðsamlegt að brjótast inní Seðlabankann og Lögreglustöð. Eins og það hafi ekki gerst á hverjum degi hér áður fyrr.
,,Hmmm djöfullinn það er komin kreppa! Best að ráðast á lögreglustöðina!! Þetta er auðvitað þeim að kenna, helvítis lögreglan!!"
Það væri nú gaman ef lögreglan þyrfti nú að fara að ganga um með skotvopn.
"Affriðum rjúpuna og friðum mótmælandann í staðinn"
Og hvað er svo málið með eggjakastið?? ,,Sýnum þroska og köstum eggjum í hús!" Þetta minnir mig á svona 9 ára stráka sem kasta snjóboltum í hús stelpunnar sem þeir eru skotnir í, en þora ekki að viðurkenna, þegar fyrsti snjórinn fellur til jarðar.
Fyrst þessi kreppa er svona mikið mál hvernig væri þá að gefa stjórnmála- og bankamönnum frið til að vinna í þessu máli í stað þess að vera að eyða tímum í að eyða eggjum landsins.
Sparið eggin í jólabaksturinn mótmælendur, því þú bakar ekki köku án þess að brjóta eggið..
15. desember 2008 klukkan 19:13
Pálmi Gunnarsson 2 athugasemdir
Nú er komið að því! Pálmi Gunnarsson hefur hér með sest niður og framundan liggur gríðarlegt blogg og bið ég þig lesandi góður að fá þér jólaöl áður en frekari lesning mun eiga sér stað.
Vó það er svo langt síðan að ég bloggaði að einhverju viti hérna síðast að bloggar.is er búið að skipta um "umhverfi", það er svo langt síðan að ég bloggaði síðast að Ísland er farið á hausinn, það er svo langt síðan að ég bloggaði síðast að Færeyingar eru orðnir stærri en við, það er svo lan... okey ég held þú skiljir..
Sko nú kemur blogg!
Okey það er eitt mjög sérstakt atriði sem mig langar að benda á. Eins og þið eflaust vitið þá ríður kreppa yfir heiminn, að undanskildu Kanada, og menn svona mistruflaðir af henni. Eins og í flestu þá eru til öfgamenn og mín skoðun er sú að fréttamenn eru mjög duglegir að ýta undir öfga fólks. Um daginn barst sú frétt að Ísland væri farið á hausinn, innflutningur á bensíni og mat væri hætt eða mundi hætta von bráðar og það liggur við að fólk var beðið um að týna grýlukerti sér til matar. Okey í fyrsta lagi vil ég taka það skýrt fram að ég hef enga trú á að þetta gerist, en ef svo ólílega vildi til þá vil ég benda á hversu öruggt er að vera bóndi í dag:) Við eigum nóg af kjöti til að býta og brenna, nóg af grasi til að éta með því, og vatn er auðvitað ekki vandamál fyrir neinn hér á landi. En ég vildi bara benda á þetta til að geta sagt FACE!! við þessa þéttbýlinga sem gera reglulega lítið úr sveitapakki.
Skrýtið með þéttbýlinga, þeir segja alltaf hvað sé vond lykt í sveitinni, semsagt skítalykt. Okey ég bý nú á Akureyri og er þetta grín með fýluna hérna?? Lyktin af verksmiðjunum er svo viðurstyggileg að glaður mundi ég baða mig í kinda- eða kúakúk í staðinn að láta þennan óþef skríða inn um nasir mínar.
Já og svo er annað dáltið merkilegt. Við erum terroristar! Yes, I´m sorry mr. Brown but I want to tell you that, that Icelandic people are very mean. We are terrorist actually. If you wont apolagize us about the money thing we will sail to your country, on our fishing boats, and ruin it. We are armed with hayforks, ironmen and everything.
Hvernig í ósköpunum dettur svona valdamiklum manni í hug að nefna Ísland í sama anddrá og hryðjuverkamenn. Sko, dude, við erum rétt svo 300.000 manna þjóð! Vonandi misskildir þú ekki Dorrit þegar hún sagði ,,Stórasta land í heimi!"
Allavega annað um kreppuna.. nú eru "mótmælendur" að tala um að fá alþingiskosningu aftur.. á sama tíma vilja þau fá bætta stöðu efnahagsins og það ekki seinna en strax! uuu góðan daginn okey segjum sem svo að það verði kosið; það þýðir að næstu 5-6 mánuðir fara í kosningabaráttu og kosninguna sjálfa sem þýðir helling af tíma sem þarf að nýta til að styrkja færi í þetta.. frábært.. ekki nóg með það ef greyið stjórnarandstaðan yrði svo kosin í þá mun það taka hana allavena mánuð ef ekki 2 til 3 til að komast inn í öll málin...
Þannig já það yrði frábært að eyða tíma í svona vitleysu
Ganga í ESB? Ertu eitthvað verri? Eigum við á ekki bara að selja sjálfstæði okkar á e-bay? Taka upp evru? nei takk.. lönd sem eru með evruna eru ekki í betri ástandi en við.
Ég viðurkenni það að ég er þjóðernissinnaður og elska íhaldið sem tengist þjóðernishyggjunni.
Niður með ESB og Hörð Torfason sem er EKKI söngvari þjóðarinnar
27. nóvember 2008 klukkan 19:01
Pálmi Gunnarsson 3 athugasemdir
Fyrst kom einn mánuður og ég var nokkuð sama, svo annar mánuður og ég varð pínu undrandi á sjálfum mér en eyddi ekki löngum tíma í þær vangaveltu, svo kom þriðji mánuðurinn og þá varð ég enn meira hissa og fékk pínu bömmer, svo hófst fjórði mánuðurinn og þá viðurkenndi ég það fyrir sjálfum mér. Ég fékk ritstíflu. Ritstífla er erfiður sjúkdómur og það eru ENGIN lyf við því. Svo er maður alltaf að heyra í útvarpinu einhverjar auglýsingar um styrktarsjóð fyrir rannsóknir á mænusköðun (ef það er rétt orðað), allir að safna pening fyrir mænuslappt fólk en engin safnar pening fyrir ritstífluveikt fólk. Asnalegt! En ég nenni ekki að tala um sumrið, þið getið bara lesið blogg hjá öðrum, sumarið hjá mér var örgla svipað. Nema ég var með ristil = as in sjúkdóminn.. vonandi fékk engin annar það því það er eins og að búa í fanginu á Kölska.
Skólinn byrjaður jújú... Spæ203, Ísl403, Hsp103, Fél203, Nátt123,STÆ203 og Bol311 Ég hata mánudaga....neinei.. ég hata félagsfræði..oog mánudaga
(Ræsk) :) okey kannski mun Bjarni vera sá eini sem fattar þennan...
uuu já svo er eitt sem ég vil koma á framfæri; Ég bý núna á Ránargötu 20 en ekki á vistinni lengur.. það hafa neffla margir verið að spurja mig á hvaða herbergi ég byggi en ég hef flutt af vistinni fyrir fullt og allt. Gaman af því
En hvernig væri nú að byrja að tala um eikkað málefnalegt eins og verkfall ljósmæðra eða eikkað.. ég meina hver þarf ljósmæður þegar við höfum rafvirkja? ...okey þessi var lélegur.. lofa að koma með betri næst..
en eins og sjá má þá skín ritsstíflan í gegnum þetta "blogg" því ég virðist ekki getað búið til neitt skemmtilegt umræðuefni..
P.S. hænur eru fyndnar Jæja nú ætla ég bara að drulla yfir bloggið mitt og segja bless en vondandi get ég pungað út betri bloggi næst Kveðja Fifa-lausi Pálmi
16. september 2008 klukkan 21:19
Pálmi Gunnarsson 2 athugasemdir
ATH! Eftirfarandi grein er birt með fyrirvara um prentvillu.
Hvernig stendur á því í dag er varla hægt að versla á þess að þurfa fá sérstakan samviskumiða með heim. Ég kalla þetta samviskumiða af því að maður verslar og verslar, fyllir kerruna af vistum, mismikilvægar, og telur sig þurfa á öllu þessu að halda. Svo kemur maður að afgreiðsluborðinu borgar, fær kvittun... og þá fyllist maður af samvisku. Oftast er spurt og menn segja já með miklum tregða því þeir vilja náttúrulega ekki sjá syndir sínar á svörtu og hvítu en samt vilja þeir líta út fyrir að þora að takast á við þær. ,,Viltu kvittun?“..... „uuuhhh aahhh æi jú jájá.“ Kannist þið við þetta? Ég samt er ekki viss um að þetta gildi jafnt á með körlum og konum. Ég held að karlmenn fá þyngri samvisku en konur yfir þessum miðum. Ég hef stundum fylgst með körlum og þeir bera sig öðruvísi að við að borga en konur. Karlar eru niðurlútari og segja sem minnst við afgreiðslufólkið (helst bara já eða nei), svo drífa þeir sig að troða í pokana, skella þeim upp á bakið, tilbúnir að bruna út og þáá man afgreiðslufólkið eftir kvittuninni og spyrja. Það er eins og karlar séu að vonast eftir því að afgreiðslufólkið gleymi að spyrja þá og þar af leiðandi komast þeir hjá því að horfast í augy við sína eigin samvisku. Þetta virkar svona eins og þegar kennarinn ætlar að skoða heimavinnu nemandans sem gleymdi að læra heima og nemandinn bíður niðurlútur, hljóðlátur, drepast úr stressi og að bíða eftir að bjallan hringi út. Konur eru hinsvegar rólegri, upplitsdjarfari og þiggja frekar kvittun, henda þeim svo bara í karlinn þegar þær koma heim. Þar sitja þeir í einni taugahrúgu, vitandi hvað bíður.
En málið er bara að staðan er að vera þannig að það er ekki sama verð í hillum og við kassa... sem er mjöög slæmt. Því miður sést þetta æ oftar hérna í Samkaupum Úrval á Blönduósi. Fylgisti bara með þessu og látið í ykkur heyra ef þið verðið fyrir þessu.
Ég var að lesa Gluggann í dag og las baksíðuna sem var heilsíðu auglýsing frá Samkaupum Úrval. Þar stóð með risastöfum: Grillaður kjúklingur + 2L Coke á 999kr.
Allt í lagi flott tilboð. Það gilti 2.maí. sl.
Svo stóð neðar á síðunni með „aðeins“ smærra letri: Verð birt með fyrirvara um prentvillu.
Hvað er það? Kemur kannski leiðrétting í næsta Glugga?
„Leiðrétting frá í síðasta Glugga: Grillaði kjúklingurinn sem skrifaður var á 999kr. í síðasta Glugga kostaði í raun 2000kr. Með von um frekari viðskipti og færri prentvillur. Starfsfólk Samkaup Úrval.
Traustvekjandi?
Ég er samt að hugsa um undir hvaða kringumstæðum gæti verðið í svona heilsíðu-tilboðs-auglýsingum klúðrast með prentvillu? Ég meina hvað gæti gerst? Gæti einhver veikur maður sem er sjúkur í grillaðan kjúkling brotist inn á prentskrifstofu Gluggans og breytt verðinu? Nei.. hann mundi líklegast stroka þá út smáa letrið. Eða á þetta bara að vera trick til að fá viðskiptavini til að versla við þá...eins og viðskiptavinirnir mundu fara eitthvað annað. Eða gæti Samkaup farið á hausinn bara sísona og eina vonin þeirra væri að selja þennan grillaða kjúkling og eiga þá möguleika á að hækka verðið til að borga upp skuldir? Njee, finnst það dáldið ólíklegt að viðskiptavinur mundi kaupa kjúkling á sama prís og skuldir fyrirtækis næmu.
Verslum í heimabyggð!
Bless
07. maí 2008 klukkan 03:13
Pálmi Gunnarsson 4 athugasemdir
Nú fara síðustu dropar batterýisins að leka út og sé ég mig því tilneyddan til að drita niður svona eins og einu bloggi eða svo. Síðan síðasta bloggfærsla var innrituð hefur margt gerst, eitt ómögulegt annað hræðilegt. En einhver sagði að það sem drepur mann ekki styrkir mann. Ég vona að þessi ágæti maður hafi eitthvað til síns máls því ég hef ákveðið að leggja þessi orð inn á lokaðan reikning í viðhorfsbankanum mínum.
Núna er alveg að koma sumar.. það er nú eiginlega komið nema bara ekki á pappírnum. Lóa er mætt ásamt fylgdarliði þ.e. Tjaldurinn og Helsingjarnir, þannig nú þarf að vekja hundinn til að smala Helsingjum áður en þeir slíta upp öll bestu stráin frá ánum.
Hvað eigum við samt að veðja mikið upp á hvenær snjórinn fellur aftur niður á Akureyri?
Ég var að hlusta á útvarpið í gær og á Rás2 voru einhverjir ungir menn að tala saman. Annar fer að segja hinum frá því að dóttir hans hafi verið að leika sér í kringum sjónvarpið þeirra og leikurinn endaði þannig að hún rekur sig eitthvað í sjónvarpið og það dettur niður á parketgólfið og auðvitað eyðileggst. Honum fannst þetta nú samt bara gott mál því hann ætlaði hvort eð er að fara að kaupa nýtt sjónvarp og þar sem hann er nú tryggður öllum trygginum þá hringdi hann í tyggingastofnum og spyr hvort hann fái ekki sjónvarpið bætt. Tryggingafélagið segir jújú þú ert með allar tryggingar á hreinu þannig þú færð þetta bætt. Svo tekur hann eftir því að sjónvarpið hafi hoggið í parketið og spurði hann því hvort hann fengi það ekki líka bætt. Jújú var svar tryggingamannsins sem bætti svo við að tjónamaðurinn kemur bara í dag og metur tjónið og aðstæður. Eftir 2 tíma hringir tryggingastofnun og segir: ,,Fyrirgefðu, það var smá misskilningur. Þú færð ekki parketið bætt af því að það er ekki hægt að tryggja fyrir svona tjón þar sem eitthvað fellur ofan á parketið."
Uuu já fengi hann þá bætt ef sjónvarpið hefði fallið í hliðina á parketinu eða undir það?
Ég veit ekki hvað ykkur finnst en mér finnst þetta alveg..
Svo eru þessi tryggingafélög endalaust að eyða peningnum í auglýsingar hvað þau séu frábær. Hvaðan kemur þessi peningur? jújú frá okkur. ,,Já, ég hringi hérna til að vita hvort ég fái ekki örugglega auglýsingar í sjónvarpið." ,,Jújú, þú hefur tryggt þér þær."
Jæja nú er kannski kominn tími til að fara að halla sér..
P.S. Mætið í Húnaver á Sumardaginn fyrsta ef ykkur langar til að sjá okkur fimm fræknu spila;)
20. apríl 2008 klukkan 01:59
Pálmi Gunnarsson 3 athugasemdir
Einhverja hluta vegna tekst mér alltaf að punga út bloggum á nóttunni. Skýringin á því er mér hulin en það er alltaf von að það finnist út úr því máli sem og öðrum vandamálum.
Páskafrí hafið, hófst á föstudaginn sl. Hverjum datt samt í hug að kalla þetta páska!FRÍ! Hvenær byrjar þetta blessaða frí. Hvaða námsmaður kannast ekki við ræð kennarans í síðasta tíma fyrir páska:
,,Jæja krakkar mínir, þar sem páskarnir eru að skella á þá datt mér í hug að hleypa ykkur sjö.. fimm mínútum fyrr heim en í staðinn skuluði gera 2 skilaverkefni, lesa 170 bls. í fornum bókmenntum og byrja á heimildaritgerðinni. Munið að þið verðið að vísa í 5 heimildir í heimildaskránni og skrifa þær rétt upp, annars fáiði mínus. Gangi ykkur vel og gleðilegt páskafrí."
Svo brosa kennarnir sínu breiðasta, alveg vissir um að hafa platað okkur í þetta sinn.
Og hvað er málið með heimildaskrár?! Af hverju þarf að vera reglur í heimildaskrá? Einu reglurnar sem mér finndist að ættu að vera er þær að fram ætti að koma nafn á höfundi, bók og svo ártal.
Þegar ég les bók sem skrifuð er með tilvísanir í heimildir þá er mér skítsama þó ártalið komi á undan höfundi. Ég, meðalgreindi maðurinn, skil vel að höfundurinn heitir Halldór Laxness en ekki 1974. Ég skil líka að bókin heitir: Karlar eru frá Mars Konur frá Venus þó svo nafnið sé ekki skáletrað (italic letur). Þetta finnst mér alveg með því hallærislegasta sem hægt er að finna reglur um. Það má vel hafa þessar standard reglur; Nafn höfundar, nafn bókarinnar, ártal og útgáfufélag. En að allt þurfi að vera í réttri röð.. það er eikkað annað. Svo er lítur þetta allt öðruvísi út þegar heimildin er tímarit eða netsíða eða dagblað. Af hverju eyðir fólk ekki frekar tíma í að laga hið íslenska dómkerfi í stað þess að vera að semja einhverjar fáranlegar reglur sem enginn kann nema hann noti sérstaka handbók um frágang og ritun?!
Jæja, Samkaup. Ég fór í Samkaup í gær í fyrsta sinn eftir breytingu.. ég týndist. Nú eru hillurnar orðnar á þriðja meter þannig nú hittir maður engan þar fyrr en maður er kominn ofaní innkaupakerruna hjá viðkomandi. Ég tók líka eftir því að að tannkremið og tannburstinn er á sama "gangi" og nammið. hentugt? Í anddyri kaupfélagsins voru Hvatarmenn að selja blóm. Sennilega til að getað borgað nýju knattspyrnuhetjuna Gillzenegger. Við styrktum þá, enda ekki leiðinlegt það að fá Stóra G á Dósina, haa hvernig væri það. Úff ég las viðtal við hann á www.fotbolti.net um daginn.. ég gubbbaði á tölvuna mína mér leið svoo kjánalega.
Eikkað að lokum?
Hmmm
Heimildaritgerð hættuleg er, legg mig í töluverðan háska. Þúsund þrautir á öxlum ber, þarf að klára allt fyrir páska.
21. mars 2008 klukkan 02:59
Pálmi Gunnarsson 4 athugasemdir